top of page

Sandur fyrir reiðhallir

Verð fer eftir stærð rýmis og

gerð sands. 

csm_OTTO-ArenaTex_d1d7569646.jpg

Vörulýsing:

OTTO Arena Tölt er hönnuð fyrir íslenska hestinn og er ákveðin blanda flísefnis og kvars sands af ákveðinni stærð sem þjappast hæfilega án þess að fjaðurmagn tapist. Otto Arena Tölt blandan er lögð í 8-10 mm þykkt ofan á reiðhallamotturnar og úr verður sérstaklega stöðugt en fjaðrandi gólf, sem bæði hestar og menn hafa unun af að vinna á. Slíkt reiðhallagólf endist árum saman með hæfilegri daglegri umhirðu, sem felst fyrst og fremst í að hreinsa úr hófum áður en farið er inn á gólfið og að hreinsa upp allt hrossatað jafnóðum. Mælt er með að hafa reiðhallarherfi til að jafna gólfið eftir þröfum.

Hjá OTTO Sport International GmbH hefur skapast mikil reynsla og þekking á því hvaða yfirborðsefni henta best í reiðhallir. OTTO hefur áratugum saman gert tilraunir með sand og fleira á sinni eigin rannsóknarstofu til þess að finna ákjósanlegustu blöndu yfirborðsefnis fyrir hesta og knapa. Niðurstaða þessara rannsókna er blanda af OTTO Arena Tölt og OTTO GeoTextil sem lögð er ofan á OTTO Sport reiðhallamotturnar.

Verklýsing:
Otto Arena Tölt blandan er lögð í 8-10 mm þykkt ofan á reiðhallamotturnar.

Litur: Ljós

Þykkt: 8 - 10 mm (yfir mottur)

 

Verkefni:

Mottur og sandur fyrir Reiðhöllinna á Hólmshúsum í Eyjafirð.

Okkar staðsetning
Sendu okkur fyrirspurn

Takk fyrir að hafa samband.

Við svörum þér eins fljótt og auðið er.

Hesthús.is   |   Grenibyggð 10   |   270 Mosfellsbæ   |   Sími  893 9919   |   Kt: 140659 4959   |   VAT: 42755

© 2023 hesthús.is    -   Vefur hannaður af Onit | Multimedia

bottom of page